|
|
16.04.2007 15:48:52 / sara
Jæja prófin búin sem er alveg yndisslegt miðað við að það er
bara 16. apríl. Lífið hefur nú lítið snúist um annað en
prófalestur og tilheyrandi nanmmiáti og nú veit ég ekkert hvað ég á
að gera af mér, það er nú víst svo sem alveg nóg að gera þarf bara
að byrja á einhverju.
Við skelltum okkur til Hólmavíkur um páskana sem bauð upp á
skírn, ball og lestur....það er alltaf svo gott að komast aðeins
heim þó það hafi nú ekki verið nema bara í tvo daga, og
að fara út og anda djúpt inn án þess að verða svartur í nefinu
af helv. svifrykinu, elska það já og líka að fara
upp í sjoppu eða í búðina og þekkja fólkið sem er þar,
finst alveg drepleiðinlegt að fara í Bónus og ég þekki bara
engan!
En næstu 3-4 vikur bjóða upp á verkefna vinnu og stofnun
fyrirtækis.....mjög spennandi að sjá hvað kemur út úr því!
Svo er sumarið alveg að koma og ég bíð spennt !!
Kv. Sara
»
15.03.2007 16:23:19 / sara
.....23 búnir að kíkja inn í dag og enginn
kvittar, kanski er teljarinn bara bilaður.
....En endilega kvitta.
Kv. Sara
»
14.03.2007 22:28:01 / sara
Þessa dagana er maður víst alveg á milljón
í öllu....skólanum, ræktinni, tölvunni, sjónvarpinu, og já
bara lífinu! Allavengana nóg að gera framundan, næsta vika
fær nafnið crazy vika í skólanum þrjú próf og tvö
skilaverkefni takk fyrir!! Svo styttist skuggalega mikið í
lokaprófin aðeins tvær vikur ef ég kanna að telja
rétt!
Fór til spámanns í síðustu viku, þurfti að drekka
kaffi...fyrir þá sem ekki vita þá er ég ekki orðin svo fullorðin
að ég drekki kaffi svo spáði hann í uppstreymið úr
bollanum mínu...svaka spennandi sagði margt og mikið. Svo þegar
ég kom heim var ég alveg hyper eftir þessa tvo bolla af kaffi og
ætlaði aldrei að geta sofnað, svo fékk ég skyndilega illt í magann
sem ég auðvitað kenndi kaffinu um og ákvað því að það
væri örugglega sniðugt að drekka mikð vatn til að
jafna út kaffið...þannig að ég drakk vatn eins og mér væri
borgað fyrir það, sem endaði með tíðum klósettferðum alla
nóttina...sniðugt ha!
Á föstudaginn skellti ég mér á Árshátíð
viðskiptaráðs, sem var bara snilld, fór í mesta partý leigubíl sem
ég hef farið í, bílstjórinn var eldhress og búinn að græja
playlista og allt...bara flottur á því. En besta atriðið
var þegar við vorum að fara inn á árshátíðina, þá sáum
við að það var verið að taka vínið af einhverjum og stelpurnar
fengu þá snilldarhugmynd að fela vínið í runna fyrir utan og
skreppa svo bara út til að fá sér snafs, ég held samt að það hafi
ekki verið gert og vínið er örugglega enn á sínum
stað.
Ferðir mínar í ræktina hafa aukist enda er
heilsan miklu betri eftir að vera eins og hálviti í salsatímum og
body shape-i en það er bara yndissslegt...ég ímynda mér alltaf í
salsanu að ég sé svona eins og Joey þegar hann fór í eina
leikprufuna og þurfti að dansa muniði!
Já og svo eignuðust Aðalheiður og
Elli einn lítinn lilla nabba í gær loksins kom hann...hann var
nú reyndar ekkert lítill 19 merkur og 56 cm, ég hlakka alveg
rosalega mikið til að sjá hann.
En já ég held að þetta sé komið gott í bili....
Njótið lífsins!! 
Kv. Sara
»
05.03.2007 14:07:17 / sara
Jæja það er víst komin tími til að Jude Law
færist niður um eitt blogg! 
Annars er bara allt gott að frétt hjá mér,
skólinn er að verða alveg crazy en ég ákvað bara að njóta þess í
staðin fyrir að kvarta yfir því þegar ég las eitt blogg
áðan...
Helgin var bara góð, djamm með stelpunum í
AO á föstudagskvöldinu, rosa gaman, skemmt mér mjög vel, ég
var nú kanski orðin heldur æst í Pictionaryinu ég á
það stundum til. Sem dæmi um að missa sig í
gleðinni vaknaði ég líka á
laugardagsmorguninn með dágóðar harðsperrur í maganum eftir
allan hláturinn og vitleysisganginn. 
Svo keypti ég svona líka rosalega mikið
bland í poka á laugardaginn (það er búið núna) og hélt svo smá
teiti í góðra vina hópi. 
Gærdagurinn fór svo í lestur og verkefnavinnu og
ætli það verði ekki bara eins það sem eftir er af deginum í
dag.
Næsta helgi býður svo upp á afmæli, árshátíð
og góugleði og ég hef ekki hugmynd hvert stefnan verður
tekin...einhverjar tillögur?? 
En það er víst best að halda áfram með
lesturinn.....
Kv. Sara
»
19.02.2007 20:39:51 / sara
Fór á dajmmið á föstudaginn.....
....Fékk faðmlag og koss á kinnina frá Jude
Law....

....Geri aðrir betur....!
»
12.02.2007 23:19:14 / sara
Já síðustu dagar hjá mér hafa einkennst
(segir maður bara það?) af prófum og verkefnum, ég er orðin
svo þreytt á prófum...ég hef ekki einbeitingu í allt
þetta...! 
Fór í afmæli til Guðnýjar á föstudagskveldinu,
gat samt ekki verið lengi því jú, maður þurfti nú að vera hress til
að geta lært á laugardeginum.
Svo var þetta snilldar djamm á laugardagskvöldið
heima hjá Möggu, matur og spjall með öllu tilheyrandi hjá okkur
vinkonunum úr Verzló, aldeilis gaman, elduðum kjúklingabringur a la
Harpa og páskaegg og slúður í eftirrétt. Ég fékk málsháttinn ekkert
kemur af engu, held að þetta hafi verið einhver ábending um
próf...hvað haldið þið?? En allavegana það var rosa gaman og við
misstum okkur alveg soldið í gleðinni. Svo kíktum við
Magga, Salvör og Harpa aðeins niðrí bæ en Aldís og Tóta fóru
heim. Ég var að fatta það núna að ég gleymdi að smakka
bolluna. 
Sunnudagurinn átti svo að fara í það að læra en
fór í það að sitja upp á slysó í nokkra klukkutíma þar sem Gunnar
fékk járnflís í augað. Afhverju er fólk látið bíða svona lengi, ég
sver það, það fór svona einn inn á hverjum 40 mín. Þetta er ekki
hægt !! En flísin er farin og allt gott og blessað með
það. 
Ég er alltaf að fá fjörfisk í lærið...afhverju
fær maður fjörfisk, veit það einhver??
Jæja lesturinn bíður....
Kv. Sara
»
30.01.2007 19:31:53 / sara
Ég er ein heima, og ég þori ekki að horfa á
leikinn því ég verð alltaf svo spennt að það gæti liðið yfir
mig, þá er verra að vera einn heima.
Það er verið að bora rosalega mikið í vegginn hjá
mér og það er ekki ég og ég er að verða alveg crazy...
Ég þoli ekki kennara sem eru með próf og það fá
ekki allir sama prófið og skýringin er sú að maður gæti
kíkt hjá næsta manni, ég meina common það er hægt að rugla
spurningunum, svarmöguleikunum og hafa spurningarnar á mismunadi
blaðsíðum og það væri ekki fræðilegur möguleiki að maður gæti séð
hvað hinn krossaði við án þess að kennarinn væri búin að
spotta það að maður væri að kíkja. Það á eitt að ganga yfir alla.

Mér finst Kompás stundum gera góða
hluti.
Ég fór í vísindaferð og komst að því að Elísabet
er í sömu sæng og TM !
Ég er að fara í frekar stórt námskeið í skólanum
sem heitir nýsköpun og stofnun fyrirtækja og er alveg rosalega
spennandi.
Jæja best athuga stöðuna....
Kv. Sara
»
21.01.2007 14:06:49 / sara
Þessi vika hefur nú liðið aldeilis hratt.
Við stelpurnar fórum á kaffihús slash út að
borða á Caruso á mánudaginn í tilefni þess að Árný
átti afmæli...ég held að það sé búið að halda þrisvar sinnum
upp á það! Það er alveg nóg að gera í skólanum
eins og vanalega, ég á örugglega eftir að fá magasár.

Viðskiptadeild HÍ kom í vísindaferð í Atlantsolíu
á föstudaginn sem var mjög gaman svo þegar
allir voru farnir þá vorum við með kveðjupartý
fyrir einn sem var að hætta hjá okkur en bæði vísindaferðin
og partýið heppnaðist bara vel....mikið grín og mikið gaman.

Gærdagurinn átti svo að fara í það að
læra...en eins og oft áður þá opnaði ég ekki bók. Við Gunnar
fórum bara og kíktum í nokkrar búðir og vorum svo bara í
rólegheitunum. Ætli dagurinn í dag fari þá ekki bara í það að læra,
kanski maður skreppi í bíó í kvöld eða eitthvað.
Byrgið....ég gæti örugglega skrifað heila bók um
það hvað mér finst um þetta mál, en þetta
er bara....einn STÓR skandall....!!!
Og hvað er þetta með Undankeppnina fyrir
Evróvision....er fólk að missa sig....?
Ég veit ekki lengur um hvað lífið snýst
!!
Kv. Sara
»
14.01.2007 21:50:35 / sara
Skrítið hvað maður fær stundum lögnun til
þess að blogga þegar maður er að læra! En það er nú bara svona, er að glugga aðeins í fjármálin
svona til að geta verið aðeins með á nótunum í tímanum á
morgun....
Nóg að gera síðustu daga, hittingur í öllum hópum
og ég veit ekki hvað og hvað....hitti Þurý, Önnu og Sillu á
fimtudagskvöldið, svo fór ég í vísindaferð með Birnu í
Landsbannkann á föstudagskvöldið ég entist nú ekki lengur en það að
ég var komin heim um kl hálf eitt (n.b. ferðin byrjaði kl
fimm) og við skulum bara segja að ég hafi verið fljót að
sofan.
Laugardagurinn fór bara í það að borða hjá
mér.....já ég get svarið það að ég gerði ekkert annað. Fór í
brunch upp úr hádegi með Atlantsolíu stelpunum, skellti mér
svo beint á eftir í afmæliskaffi til Árnýjar, fór svo
heim og stoppaði þar í klukkutíma og svo var farið á Lækjarbrekku
þar sem að ástmaðurinn var svo indæll að bjóða mér út að
borða. Enda þegar ég mætti svo í afmælisparýið hjá
Árnýju um kvöldið að þá hafði ég ekki nokkra list á að fá mér eitt
né neitt. Ég borðaði örugglega fyrir alla vikunua á
laugardaginn.....
Svo vaknaði ég bara á skikkanlegum tíma í morgun
og tók til, ryksugaði og skúraði og þurkaði af og allt, allur
pakkinn bara og ég var rétt búin að henda ryksugunni aftur inn í
skáp þegar Tóta, Aldís, Magga og Salvör komu til mín. En
það var nú alveg komin tími á alla þessa hittinga og gaman að hitta
ykkur allar skvísur!
.....En æj er hætt þessu rugli.....
Kv. Sara
»
10.01.2007 21:37:42 / sara
Já þið eruð að lesa eitthvað annað en komin
til lúx....komið nýtt ár og skemmtilegir tímar
framundan og því datt mér í hug að deila þeim með
ykkur og fara að blogga!
.....En samt þegar ég fer að hugsa þetta aðeins
betur þá var ég eiginlega bara að reyna að finna mér eitthvað
annað að gera en að lesa hagfræði. Ég ætla nú samt ekkert að lofa
því að ég eigi eftir að halda áfram að blogga en við
skulum bara sjá til.
...Sem sagt þá er ég í viðskiptafræði í
Háskólanum í Reykjavík, bara fyrir þá sem höfðu ekki hugmynd
um það og er að vinna hjá Atlantsolíu svona smá
með.
Nóg að gera eins og alltaf og það er
lærdómurinn sem á allan minn huga og lítill tími fyrir annað. Ætla
nú samt að gefa mér tíma til að fara í vísindaferð í Landsbankann á
föstudaginn bara svona til að sýna lit þar sem að ég fór bara í
eina á síðustu önn.
En já ég hef öruggleg eitthvað meira
og merkilegra að segja frá næst þegar mér dettur í
hug að blogga, kanski verður það árið 2010 og þá verður
sjálfsagt komið eitthvað allt annað en blogg.
Kv. Sara sem er vonandi loksins skirðin úr
dvalanum!!! 
»
15.07.2006 16:14:57 / sara
Jaeja thá er ég hér í Lúx....búid ad vera
ótrúlega gaman, flugid var alveg on time upp á mínútu og
Bjossi nádi í okkur til Frankfurt Han keyrdum til Lúx
og fórum beint í íbúdina hans Hjalla thar
sem vid verdum, og audvitad voru til nokkrir kaldir í
ísskápnum, thannig ad vid spiludum og
hofdum gaman.
Í gaer byrjudum vid svo daginn á
thví ad fá okkur lunch hjá Bob og fórum svo í supermarkadinn
og keyptum eitthvad til ad eiga í ísskápnum var samt alveg ad deyja
úr threytu thví ég var alveg heillengi vakandi thví thad var
svo heitt og ég gat ekki sofid. Fórum svo aftur og bordudum hjá
Bob og tókum svo bara kana med Hjalla, ekkert djamm thví
their thurftu bádir ad vakna og maeta í vinnu....en thad
verdur allt baett upp í kvold, thad er djasshátíd og mikid fjor í
baenum í kvold.
En vid vorum ad koma heim úr baenum,
aetludum ad versla eitthvad en thad eina sem eg keypti var vatn og
namm, trúidi thvi ég trúi thví eiginlega ekki sjálf.... En
planid í kvold er ad fara út ad borda og svo nidrí
bae...
En ég aetla ad drífa mig í sturtu....og já thad
er HEITT!!!!
Kv. Sara
»
05.07.2006 20:02:14 / sara
Já það má sko með sanni segja að
hamingjudagarnir hafi verið snillld, ég skemmti mér alveg
ótrúlega vel, kanski stundum of vel.... Hætti í vinnunni um
hádegi og fór norður með Karen og Ívari sem bölvuðu mér í
sand og ösku fyrir að haf viljað fara Tunguheiðina....mér
fanst það fínt. Fór beint heim til Ragnheiðar og Dóra
þegar ég kom, kíktum svo á myndlistarsýninguna í
skólanum og svo endaði ég á Ínutónleikum sem voru bara
ágætir. Tók snilldar rúnt með Valdísi um kvöldið,
og skemmti mér alveg konunglega, kíktum aðeins á Riis og
hittum hitt fólkið, og tókum svo nokkra dansa á ballinu áður
en við fórum heim.
Vaknaði eiturhress á laugardaginn, fórum og
kíktum á skemmtiatriðin niðri í kirkjuhvammi sem voru bara fín,
rigningin var samt ekki alveg að gera sig, en það var fínt þegar
hætti að rigna. Fórum svo heim og elduðum, svo var brekkusöngu en
engin brenna en stúlknakórinn var mættur á svæðið. Ragnheiður
búin að bjóða í pallapartý þannig að það kom fullt af fólki og
Smári og Andri spiluðu á gítar ótrúlega gaman, já og hundurinn
kveikti aðeins í sér, hann settist á kertið og það kom vond
lykt.... Fórum svo á ball og Kokkteill er bara góð hljómsveit á
balli....þetta var æðislegt stóðst alveg 100% allar
væntingar. Hafði ekki orku í eftirparý og hafði vit á því að
snáfa mér heim.
Sunnudagurinn var fyndin....sérstaklega þegar ég
skoðaði myndavélina sem ég hafði greinilega ekki verið með á
ballinu heldur einhver annar.....og ég á bestu ljótu bestu mynd í
heimi!
Jæja er á leiðinni í afmæliskaffi til
Rögnu...
See'ya
»
28.06.2006 19:33:01 / sara
»
25.06.2006 19:39:05 / sara
Var að enda við að borða ótrúlega góðan
grillmat hjá pabba, ég gæti ekki sett einn bita í viðbót upp
í mig, alltaf svo gott að borða hjá pabba....
Annars er helgin nú bara búin að vera frekar
róleg hjá mér, var mætt í ræktina fyrir hádegi í gær, kíkti svo
aðeins til ömmu og afa og fór svo heim og var rétt
byrjuð að taka til, og þá til allrar hamingju kom
Árný til mín og bjargaði mér frá því. Við kíktum aðeins í
Smáralindina og hittum Tótu og fórum svo heim með henni að skoða
nýju íbúðina í Hjarðarhaganum sem var bara mjög flott ég væri
alveg til í að eiga hana. Svo fór ég bara heim og Árný fór norður,
þannig að það varð ekkert úr laugardagstjúttinu en það verður bara
bætt upp á næstu helgi. Í dag var bara líka
rólegheit kíkti aðeins á mömmu og tók einn hring í Kirnglunni,
það var nú allt og sumt.
Mig langar svo að breyta heima hjá mér, bara
einhverju, það er samt svo takmarkað hægt að breyta. En þið vitið
hvernig þetta er ef maður getur breytt einhverju þá er oft eins og
maður sé komin í eitthvað nýtt, eða er ég bara
klikkuð....!
Jæja ætla að bragða á eftirréttinum, maður
hefur nú allaf pláss fyrir hann, er það ekki??
»
22.06.2006 20:57:41 / sara
....Og þá jafnvel tími til komin að fara að
snáfast til að skrifa eitthvað hér...
Allt gott að frétta hjá mér er bara á fullu í
vinnunni, lífið snýst um það þessa dagana og fara í
ræktina. Planið er svo að skella sér á Hamingjudaga á
Hólmavík á næstu helgi og ég er farin að hlakka svo mikið til,
það er að segja ef einhver vill taka að sér tvo heimilislausa sem
eru brottfluttir.
Fór í AO-útilegu á síðustu helgi í Reykholt...já
ég í útilegu...ég veit en tæknilega séð var ég ekki í svo mikilli
útilegu, ég var í fellihýsi og það á bílastæðinu. Við
máttum ekki tjalda á tjaldstæðinu því það var búið að rigna svo
mikið og því varð bílastæðið fyrir valinu, vorum svo
meirasegja rukkuð fyrir að vera þar, 400 kr á mann en fengum
samt heilar 100 kr í afslátt. En þetta var algjör snilld, hefðum
ekki getað fengið betra veður á laugardeginum og um kvöldið, við
áttum það nú líka skilið eftir alla rigninguna. Það
hætti að rigna eftir hádegi á laugardeginum og
við hentum upp nokkrum tveimur tjöldum og fórum svo
í sund, ég ætla aldrei aftur að reyna að tjalda
partýtjaldi. Svo kom allt hitt fólkið og þá
var grillað og eftir matinn tóku gítarsnillingarnir okkar nokkur vel valin lög og svo var
djammað fram eftir allri nóttu. Frábær útilega með
æðislegu fólki.
Ég er alveg out núna ætla að fara að gera
eitthvað....
Hafiði samt tekið eftir því að ég er alltaf að
fara að gera eitthvað.....
Kv. Sara
»
Síður: 1 2 3 4
|
Dagsetning
10. febrúar 2012
Dagatal
| febrúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | | | 1 | 2 | 3 | 4 | | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | | 26 | 27 | 28 | 29 | | Fyrri | Næsti |
|